Personal Ambition Information

Report Abuse

Draumalandð allt austurland

Draumalandið Austurland

East Iceland, Austurland

Draumalandið Austurland

 

Fyrir stuttu skrifaði ég grein; Er byggðastefna á Ísland?  já og ef hún hefði nafn kallaðist hún allir suður. https://kjarninn.is/skodun/2020-01-11-er-byggdastefna-islandi/ 

 

Þar fór ég yfir það sem mér hefur fundist að í þeirri stefnu sem er að byggja allt miðlægt upp á höfuðborgarsvæðinu. Sú stefna hefur valdi gríðarlegri ójafnvægi í búsetu sem sést best á því að 80% íbúa búa á svæðinu frá Borgarnesi að Selfossi mean á Austurlandi búa frá Höfn að Vopnafirði rétt um 3% landsmanna.

En það er ekki bara ákvarðanir fólk fyrir sunnan sem er vandamálið, vandamálið er líka við sem hér búum. Við höfum hingað til ekki búið okkur til framtíðarsýn fyrir Austurland. Framtíðarsýn sem við getum öll sameinast um að berjast fyrir að láta verða að veruleika.

Þetta er mín tilraun til að búa til slíka framtíðarsýn.

Draumalandið Austurland er 9000 manna kjarnasvæði á mið-Austurlandi tengt saman með Samgöngum.

Draumalandið Austurland er orðið næginlega stórt og sterkt til að keppa um fólk og fyrirtæki og vaxa. Mið-Austurland nærir nærliggjandi byggðir og sveitir.

Þjónusta eins staðar verður þjónusta allra staðanna, aðstaða hvers staðar verður aðgengileg öllum alltaf.  Íbúi á Egilsstöðum getur sótt sér þjónustu með einföldum hætti á Neskaupsstað og öfugt með því að keyra á heilsárs láglendisvegi.

Draumalandið Austurland verður eins og hverfi í Reykjavík, íbúar búa í Gravarvogi en vinna niður á Granda og sækja íþróttir í Vesturbæinn. Það skiptir ekki máli hvar þú býrð þú hefur alltaf aðgengi að þeirri grunnþjónustu sem þú þarfnast.

Í dag er hver og einn staðar á Austurlandi of lítill til að bjóða íbúum upp á allt það sem vantar og sérstaklega ungu fólki sem flyst í burtu.  Unga fólkið fer í skóla að mennta sig eða sækir í aukin tækifæri sem fylgja stærri og fjölmennari íbúasvæðum og langflestir koma ekki aftur því okkur hefur ekki tekist að búa til næginlegar góðar aðstæður hér.

Sameiginlega er mikil þjónusta, afþreying og aðastað á Austurlandi en svo hún nýtist þarf að tengja saman fjölmennustu og sterkustu byggðirnar með Samgöngum.

Með því að gera það munu lykilstofnanir og lykilfyrirtæki tengjast betur.  Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupsstað mun tengist alþjóðaflugvellinum á Egilsstöðum, hafnir, ferja og flugvöllur tengjast saman sem opnar á fjölmörg tækifæri til inn- og útflutnings.

Verkmenntaskólinn á Neskaupsstað  og Menntaskólinn á Egilsstöðum munu styrkjast og þetta gefur þeim aukið tækifæri til að veita betri þjónustu og vinna saman.  Með þessu væri kominn sterkari grunnur til að koma á háskólanámi í fjórðungnum sem er eitt af lykilatriðum sterks samfélags

Með Samtöngum tengjast íbúar á Egilsstöðum sterkum atvinnufyrirtækjum í sjávarútvegi og áli með betri og öruggari hætti. Að sama skapi tengjast firðirnir  betur opinberri þjónustu og afþreyingu á Héraði og  saman myndar þetta öfluga heild sem gefur Akureyri og Eyjarfjarðarsvæðinu ekkert eftir.

Hringtengt mið-Austurland yrði ekki lengur stoppistaður fyrir ferðamenn heldur áfangastaður þar sem ferðamaðurinn gæti með auðveldum hætti dvalið hér í nokkra daga og kynnst öllu því besta sem sem svæðið hefur uppá að bjóða. Með slíkri hringtengingu væri búð að auka möguleika Egilsstaðaflugvallar sem virks millilandaflugvallar til muna.

Þetta er kjarnasvæði sem hefur öll tækifæri á að vaxa og styrkjast út frá sjálfu sér. Í dag er gríðarlega vannýtt aðstaða og þjónusta á svæðinu sem íbúar gætu nýtt sér mikið betur með Samgöngum. Draumalandið Austurland yrði mikið betur í stakk búið til að krejast meiri og betri opinberrar þjónustu og verkefna og hið opinbera gæti ekki hunsað svona vaxtarsvæði.

Í Draumalandinu myndi betra aðgengi á sjálfbæran hátt fjölga störfum um tugi eða hundruðir. Versluna á Norðfirði er ekki lengur verslun fyrir 1400 manns heldur hafa 9000 manns aðgengi að hennni.

Með stærra markaðssvæði opnast möguleikar á að halda úti bíó, öflugra leikhúslífi og hverju öðru sem fjölmennari svæði geta boðið uppá og við sækjum í miklu mæli norður. Þetta mun  virka sem segull á ungfólkið okkar að flytja aftur heim til að nýta þau tækifæri sem hér eru.

Í dag er Austurland ekki ein heild, svæðið er eins og dreifðir líkamshlutar, þeir eru þarna en þeir eru ekki tengdir saman og því vinna þeir ekki eins og ein heild.  Það er vinstri og hægri hönd á svæðinu, en það vantar að þær tengist með Samgöngum og ná þannig að leysa úr læðingi þann kraft sem býr á svæðinu og hámarka það sem þær geta gert saman.

Gerum Draumalandið Austurland að veruleika

Ívar Ingimarsson

Desired Outcomes

Success Criteria
Ef aðstæðum á Austuralndi er breytt og hið opinbera lítur eftir svæðinu eins og það á skilið með því að fjárfesta í innviðum, sé ég því ekkert til fyrirstöðu að hér muni búa um 20-30.000 manns 2042.

Requirements Needed To Progress

Preferred Participants
General Public
Type of Help Needed
Political Change, Press Coverage, Public Support

Considerations & Next Steps

Location or Impact of Ambition

Address
Egilsstaðir, Múlaþing, Eastern Region, 700, Iceland

Other Information

Ambition Status
Setup
Ambition Priority
Important & Urgent
Confidentiality Agreement
No

Images

Business Hours/Availability

Business Hours/Availability

Closed Now/Not Available
  • Monday Closed
  • Tuesday Closed
  • Wednesday Closed
  • Thursday Closed
  • Friday Closed
  • Saturday Closed
  • Sunday Closed

Author Info

Ivar Ingimarsson

Member since 2 years ago
View Profile

Activity Owner Info

Ivar Ingimarsson

Member since 2 years ago
View Profile

Like or Dislike Ambition?


Contact Me (Non-Member Use Only)